12.2.2012 | 17:35
Dæmum ekki
Sælir, nú trúi ég á Jesus Krist og upprisu Hans frá dauðum. Þegar ég las skriftir Snorra blöskraði mér. Er ekki markmið okkar sem fylgjum Jesú að líkjast Honum?
Kristur reifst aldrei við heiðingja, Hann gat skammað og rifist í trúarleiðtogum sem neituðu að sjá sannleika Guðs vegna þess að þeir voru of uppteknir við að halda boðorðin 10, en Hann sýndi alltaf syndurunum ást, von, kærleika og trú.
Kristur talar mjög einfaldlega um hvað er synd, Hann sagði í Jóhannes 16:8-11 að Heilagur Andi skal sanna heiminum hvað er synd, réttlæti og dómur. Syndin var að þið Trúðu ekki á Krist, réttlætið að Kristur er hjá Föðurnum og dómurinn, að höfðingi þessa heims er dæmdur. Hættið að fara í manngreiningarálit því Guð gerir það ekki. Annað hvort ertu syndugur eða réttlættur, það er ekkert þar á milli. Þú réttlætist ekki fyrir að halda hvíldardaginn heilgann eða að halda þig frá synd. Það er verk Guðs sem réttlætir þig og færir þig frá dauða til lífs. Þá er ég ekki að tala um lögmálsverk mannanna. Verk Guðs er Jesus Kristur.
Nú hefur Snorrið fengið að hrokast upp í kenningum sínum í mörg ár, hann veit allt best og engin er hæfur í að fræða hann um biblíuna, Guð, Jesus eða nokkuð annað sem tengist trú/rækni.
Ég hef hitt Snorra og ég fékk ekki þessa góðu tilfinningu eins og þegar maður hittir virkilega gott fólk, þvert á móti, Snorri má passa sig því það er ekki sniðugt að prétika eld og brennistein þegar Kristur prétikaði Ríki Guðs, náð, trú og kærleika.
En nú hefur réttlæti Guðs, sem lögmálið og spámennirnir vitna um, verið opinberað án lögmáls.
Það er: Réttlæti Guðs fyrir trú á Jesú Krist öllum þeim til handa, sem trúa. Hér er enginn greinarmunur:
Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð,
og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú.
Guð setti hann fram, að hann með blóði sínu væri sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig sýndi Guð réttlæti sitt, því að hann hafði í umburðarlyndi sínu umborið hinar áður drýgðu syndir,
til þess að auglýsa réttlæti sitt á yfirstandandi tíma, að hann sé sjálfur réttlátur og réttlæti þann, sem trúir á Jesú.
Hlutverk Kristinna manna er að sætta menn við Guð ekki vekja fjandskap milli þeirra. Það skiptir ekki máli hvað þú hefur gert af þér, því í Dag er hjálpræðisdagurinn, í dag vill Drottinn mæta þér, fyrir 2000 árum var Kristur dæmdur sekur fyrir syndir heimsins. Guð úthelti öllum sínum dómi á Jesús Krist, Hann var dæmdur í okkar stað. Í dag vill Guð ekki dæma neinn og gerir það ekki. Hann elskar ykkur öll sama hvort þið haldið að þið eigið það skilið eða ekki. Ekkert okkar áttum Krist skilið samt gaf Hann líf sitt fyrir okkur.
Það er heimska að vera að þræta hvað er synd og hvað ekki. Ef þú ert að særa sjálfan þig eða náungan þá er það viska að hætta því. Hættum líka að dæma fólk fyrir hvað þau velja, ef þau eru að gera eithvað rangt þá eru þau meðvituð um það og eru líklegast að dæma sjálft sig fyrir það. Aukum ekki þjaningar þeirra með að benda á galla og bresti, það er engin fullkominn nema Kristur og Hann benti aldrei á syndir syndaranna, heldur benti Hann alltaf á náð Guðs og kærleika. Guð sýndi okkur umburðarlyndi, við ættum að gera hið sama hvort sem þú ert kristinn eða ekki.
Hamingja og ást
Stebbason
Flokkur: Trúmál | Breytt s.d. kl. 17:45 | Facebook
Um bloggið
Shu Fen Chung
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 321
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Athugasemdir
Snorri var að segja hvað biblían segir. Að auki fyrirlítur biblían konur, telur þær vera eign karla.
Meira að segja boðorðin 10, þau telja konur upp með eignum karla og búpening.. og þrælum;
Og já, samkvæmt biblíu þá studd Jesu 100% við allt í gamla testamenti, tók það fram að engu mætti breyta, allt í fullu gildi.
En engar áhyggjur, jesu a'la biblíu var aldrei til; Guð biblíu er uppskáldaður.. já þetta er ein stór lygasaga, svona eins og svindl frá Nígeríu, nema í trúarsvindlinu færðu borgað eftir að þú ert dauð(ur)..
Aðeins vanvitar og sjálfskelsupúkar sem hafa verið heilaþvegnir trúa steypunni í biblíu.. eða kórna; Eða hvaða trúarriti sem er; Þetta er allt í plati, fake og fail.
DoctorE (IP-tala skráð) 13.2.2012 kl. 12:53
Sælir Doctore, biblían inniheldur tvo sáttmála, lögmálið er gamli sáttmálinn og trú á Jesús Krist er nýji sáttmálinn. Guð kýs að starfa í gegnum sáttmála og í dag starfar Hann í gegnum nýja sáttmálan. Það sem Snorri gerir listavel er að blanda þessum tveim sáttmálum saman.
Boðorðin 10 voru negld á krossinn og í dag réttlætist hver sá sem trúir á Jesús Krist. Þegar þú dæmir sjálfan þig fyrir what ever þá ertu að sýna að þú ert undir lögmálinu, ef þú værir ekki undir lögmáli myndir þú ekki dæma sjálfan þig. Ástæðan fyrir því að fólk dæmir og refsar sjálft sig er af því að það er meðvitað um synd eða lögmálið og fólk dæmir sjálft sig fyrir fáranlegustu hluti.
Jesus gerði meira en að studd 100% við gamla testamentið, Hann fullkomnaði það, Hann uppfyllti yfir 180 spádóma sem vöru skrifaðir löngu fyrir tíma Krist, dauðahafsritin sanna gamla testamentið er rétt og óbreytt og sömuleiðis er búið að finna mjög mörg rit af NT.
Ef þú vilt vita hver Guð er þá skaltu Lesa um Jesus Krist. Hvað ertu búinn að vera að hrella kristna bloggara í mörg ár á blog.is? Samt enn í dag veistu ekki muninn á nýjá sáttmálnum og þeim gamla.
Þú ættir að reyna að afsanna Krist Jesús og biblíuna í staðinn fyrir að tala illa um Guð og biblíuna því að sönnunargögnin eru Hans megin.
Shu Fen, 14.2.2012 kl. 18:42
Ert þú ekki að dæma Snorra?
Stefán (IP-tala skráð) 19.2.2012 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.